Barnabók um tilfinningar

 Saga um tilfinningar - höfundur Valgerður Ólafsdóttir

SAGA um tilfinningar er bók sem ætlað er að leiðbeina fullorðnum við að ræða um tilfinningar við börn. Sagan er skrifuð með það í huga að vera aðgengileg fyrir ung börn en bókin sjálf er fyrst og fremst leiðbeiningar til fullorðinna um hvernig þeir geta samhliða lestri góðrar barnasögu örvað umræður um tilfinningar barnanna og aukið vægi þeirra í umgengni okkar við börn og uppeldi þeirra.

Bókin fæst í bókaverslunum um allt land.


Fókusing

Tilfinningaleikni er hlustunaraðferð sem felst í að mynda tengsl við okkur sjálf og getur auðveldað okkur að lifa og starfa í flæði við okkur sjálf og aðra. Tilfinningaleikni er aðferð til að komast í samband við tilfinningar okkar, læra að þekkja þær og að bregðast við þeim á meðvitaðan hátt. Hún byggir á rannsóknum heimspekingsins og sálfræðingsins Eugene Gendlin, prófessors við  University of  Chicago. Aðferðin er notuð til að læra að virða og vera með tilfinningum sínum og tilfinningum annarra og er fyrst Tilfinningaleikni er aðferð sem gagnast vel við kennslu á öllum stigum, ekki síst yngri stigunum.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband